Í 23. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.500.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
05.06.2023 | 09:30 | 1.000.000 | 4,52 | 4.520.000 |
06.06.2023 | 11:19 | 1.000.000 | 4,47 | 4.470.000 |
09.06.2023 | 15:01 | 1.000.000 | 4,51 | 4.510.000 |
Samtals | | 3.000.000 | | 13.500.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.
Nova Klúbburinn átti 7.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 10.000.000 hluti, eða um 0,26% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 45.780.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is